|
|
25.07.2007 23:32:19 / salome
Síðasta helgi
snérist mikið til um þetta:
http://www.trigger.is/gallery2/trips/sumarhatid-20070720/?g2_page=2
Ég vona að það sé í lagi að ég
skelli þessu hérna inn.... Og reyni það með að redda þeirri
staðreynd að ég er algjör auli með tölvur og kann ekki að
setja inn myndirnar sem ég tók sjálf......
Það var sumarhátíð hjá 4x4 sem 4x3 sá um. Tengdó
komu hérna í heimsókn á föstudeginum og voru fram á sunnudag. Á
laugardeginum fórum við í bíltúr með 52 öðrum bílum eins og sjá má
á myndunum þarna fyrir ofan. Það var grillað og þetta var
mjög gaman. Svo var brunað aftur til Víkur og þá var verið að opna
Orku bensínstöðina í Vík. Orðin svona líka menningarleg. Gunnar kom
á hjólabátnum og var sá fyrsti til að dæla á. Það dugði ekkert
minna tæki.
Við horfðum
svo á vatnsfótbolta sem er algjör snilld, það ætti að halda fleiri
svoleiðis fótboltaleiki. Menn vopnaðir
brunaslöngum í sitt hvoru marki og allir frekar mikið
blautir....
Um kvöldið
komu svo Siggi, Sigrún og börnin í grill til okkar. Ég var búin að
kaupa allt í matinn og byrjuð að undirbúa þegar ég fattaði að ég
væri með 11 manns í mat sem ég vissi ekkert hvernig ég ætti að koma
fyrir! Stofan mín er nefnilega svefnherbergið hennar
Hjördísar núna. En ég á svo rúmgott eldhús að þetta reddaðist allt
saman.
Ég var svo í
bænum í gær að gera tilraun til að fá mér linsur. Gleraugun eru
farin að fara eitthvað í taugarnar á mér og ég er alltaf með þau
uppi á hausnum eða búin að týna þeim einhvers staðar en sjaldan með
þau á nefinu. Það kom líka í ljós að sjónin hjá mér er
bara að skána og gleraugun orðin alltof sterk fyrir mig. Það
útskýrir
margt....
Ég keypti mér
líka nýjan síma og í dag hef ég ekki verið til viðtals heldur með
nefið ofan í nýja símanum að reyna að læra á hann. Ég var ekkert að
gúddera það fyrst að vera ekki með Nokia síma en þetta er allt að
koma og ég held að ég og síminn eigum bara eftir að verða góðir
vinir.
Í dag var
ég svo að reyna að setja í mig þessar linsur sem ég fékk í
gær. Og ég komst að því AFTUR að ég get bara EKKI verið með
linsur, það er ekki fræðilegur möguleiki fyrir mig að setja
þær í. Mér finnst greinilega bara mjög óþægilegt
að pota hlutum í augun á mér! Furðulegt ekki satt?

»
19.07.2007 00:44:58 / salome
Eftir daginn í
dag þá hjómar gras, gras, gras og ekkert nema gras í garðinn hjá
mér ágætlega! Ég er búin að komast að því að garðvinna er ekki
sterkasta hliðin hjá hrakfallabálknum mér. Ég var allavega
harkfallabálkur í dag. Hnéð á mér er mjööööög blátt, passa vel
við merki sjálfstæðisflokksins, ekki með alla putta alveg heila
og rispuð á hendleggnum. Ég og hjólbörur og ég og risastórir
hraunsteinar passa ekki alveg saman..... Bara svona koma því á
framfæri....
Ég og Ása
erum búnar að vera að vinna í garðinum hjá mömmu. Eða ég að
hjálpa henni, hún er búin að skipuleggja og hanna þetta svo
flott. Garðurinn verður æði. Búið að vera alveg þrælgaman,
æðislegur félagsskapur, svo gaman að geta verið að vinna með
Ásu og svo er búin að vera sól svo veðrið skemmir ekki
fyrir. Garðurinn er að verða þrælflottur, verður æði þegar
allt er búið, komin pallur og pottur og allt komið á sinn
stað.
En svona miðað
við hvernig mér semur við verkfæri og steina þá held ég að ég geri
ekki mikið af því að laga til í garðinum hjá mér á
næstunni......
»
15.07.2007 22:53:32 / salome
»
14.07.2007 00:04:30 / salome
Ekki?
Á ég að segja ykkur????
Ég var að
grilla í fyrradag! OG það kviknaði ekki í neinu og að slasaðist
engin. (7, 9, 13) En já, það kom alveg í
ljós þarna hver grillar alltaf á þessu heimili.... Það voru pylsur
í matinn og ég var orðinn svo svöng að ég ákvað bara að borða á
undan Alla og ég var bara ekkert viss um að ég næði að kveikja á
grillinu! En það tókst...... á endanum........... Förum ekki nánar
út í það...........
Svo hef ég
stórfréttir! Ég fór á ,,djammið” tvær helgar í röð! Það
hefur nú bara ekki gerst síðan 2002 held ég..... Hörku
djammari. En ég setti þetta innan
gæsalappa af því að fyrri helgina fórum við hérna á Halldórskaffi,
og jú reyndar var hljómsveit að spila en maður kallar það nú samt
varla djamm. Meira kaffihúsastemming með dansandi fólki, miklum
hávaða og góðri tónlist. Við fórum með Fríðu, en hún var hjá
okkur þessa helgi. Og svo tókst mér að draga Sigrúnu og Sigga með
okkur líka. Rosa gaman, hittum fullt af fólki sem við höfum ekki
séð í möööööörg
ár.
Svo helgina
eftir þá fórum við Alli saman út að borða og komumst að því að við
gerum voða lítið út á það að vera rómó. Sem er bara fínt þar sem
við erum svona samhent í því, væri verra ef annað okkar væri rosa
rómó og hitt ekki..... En Gaui
skemmti sér vel yfir okkur. Enda alltaf að hlæja að okkur.....
En jæja, við
kíktum til dæmis inná nýja staðinn hans Kristjáns, sem er geggjað
flottur. Við fengum auðvitað túr þar um. Allt brjálað að gera þarna
og greinilega mjög vinsæll staður.
Við Alli, Gaui og Elísa fórum svo á annað heimili
strákana. Við hittum svo þar til dæmis Snorra sem ég hef ekki séð í
fjögur ár.
Svo komu Anna
og Eva í bæinn og við stelpurnar stungum af. Það var þrælgaman að
fara á svona stelpudjamm í smá stund, en ég gat auðvitað ekki
yfirgefið kallinn minn lengi.
En jæja, orðin
sybbinn.
En núna er ég
búin að blogga, svo það er ekki hægt að skamma mig fyrir að vera
löt! 
»
23.06.2007 23:57:41 / salome
Er svo þreytt að ég efast um að ég stafsetji rétt.....
Það var verið að sýna Brá í dag. Fékk fyrstu einkunn þessi
elska. Og ég auðvitað rosalega montin yfir því. Misstum reyndar af
því að sjá rakkana, ég ætlaði að sjá þá líka til að dæma hver væri
nú bestur til að eignast hvolpa með litla krúttinu mínu. Koma
hvolpar rétt fyrir jól ef allt fer eftir áætlun. Að minnsta kosti
eins og áætlunin er núna...... Hún getur nú breyst..... En ef sú
áætlun breytist ekki þá verður fjör á þessum bænum um næstu
jól.
Ég er þessa dagana að háþrýstiþvo húsið. Gaui fékk hláturskast
þegar ég sagði honum það. Dælan er svo kraftmikil og ég lítil og
létt og hann sá fyrir sé að ég hengi hérna á byssunni á meðan
hún sprautaði út um allt hlað. En það er ekki alveg svo slæmt. Ekki
það að ég ég er ekki alveg viðbúin þegar ég tek í gikkinn þá
kastast ég aðeins aftur en þetta eru ekki flugferðir eins og hann
sá fyrir sér. En Gaui er náttúrulega líka Gaui, það þarf að taka
tilllit til þess. 
En jæja, er að leka niður. Farin að sofa.
»
13.06.2007 22:07:26 / salome
Við
fórum á ættarmót um síðustu helgi. Grilluðum öll saman á
laugardagskvöldið og svo fórum við í sjóferð út á Breiðafjörð
á sunnudeginum. Það var rosalega gott veður og þetta var
alveg frábært. Svo hafðist ferðin heim og hún var eitthvað
sem við gleymum aldrei.
Við hlógum reyndar bara að þessu, eða flestu, þetta var reyndar
ekki allt fyndið, kem að því á eftir.
Við lögðum af stað um þrjú leitið úr
Stykkishólmi. Þegar við vorum rétt komin út fyrir bæinn þá mundi ég
eftir að ég átti eftir að skila vettlingum sem ég fékk lánaða hjá
tengdó svo við snérum við og skiluðum
þeim.
Eftir það gekk
ferðin nokkuð áfallalaus fyrir sig niður í Borgarnes. Keyrðum þar í
gegn en þegar við vorum komin yfir brúna fattaði Alli að við
þurftum að aka olíu áður en við héldum áfram.
Svo þegar búið var að dæla á bílinn og Alli var
farinn inn að borga byrjaði bílinn allt í einu að láta undarlega og
svo drapst á honum. Ég vissi strax að það hlyti að hafa farið
bensín á bílinn og þá þurfti að ná því af. Það tók um þrjá tíma.
Við mæðgurnar dunduðum okkur við að skoða blóm, kasta steinum í
sjóinn og ýmislegt fleira. Svo þetta var bara allt í lagi. Fengum
okkur svo að borða áður en við lögðum af stað aftur. Í seinna
skiptið sem við keyðum yfir brúna mundi Alli eftir því að hann
gleymdi að skila dælunni sem hann notaði til að ná bensíninu. Svo
það var snúið við
aftur.
Þegar að við
komum svo að göngunum var þar löööööööööng röð. Héldum fyrst að það
væri bara svona rosaleg umferð en sáum svo að það snéru allir við á
hringtorginu. Svo við snérum við og fórum fjörðinn. Við ákváðum svo
að stytta okkur leið og fara inná Þingvelli og Lyngdalsheiðina. Þar
keyrðum við fram á kvikmyndalið sem var að taka upp auglýsingu og
urðum að bíða eftir að þau
kláruðu.
Stoppuðum svo
á Laugarvatni í smá stund. Svo héldum við áfram og ætluðum niður á
Flúðir og koma niður rétt fyrir utan Þjórsá. Það tókst ekki betur
en svo að við fórum einhvern rosa krók og komum svo niður hjá
Ingólfsfjalli fyrir utan Selfoss. Svo þessi stytting hjá okkur var
bara alls engin stytting. Stoppuðum þarna á leiðinni og fórum í
göngutúr í skóginum. Við vorum svo komin heim klukkan hálf tvö
um nóttina. Þetta ferðalag sem tekur venjulega svona fjóran
og hálfan tíma tók sem sagt ellefu og hálfan tíma. Mamma
ætlaði aldrei að geta hætt að hlæja að þessu. Skil hana
reyndar ágætlega. Þetta var þónokkuð skondið. Ferðalag sem
gleymist ekki í bráð.
»
30.05.2007 23:21:14 / salome
Sporðdrekinn
(23. október - 21. nóvember)
Árstími Sporðdrekans er mitt haustið. Á þessum tíma styttist
dagurinn óðfluga og skammdegismyrkrið eykst. Gróðri hnignar, lauf
eru fallin af trjám, frost sest í jörð og veður versnar. Sálræn
áhrif nóvembermánaðar á mannfólkið eru þau að það leitar inn á við
í auknum mæli. Hjá flestum er einungis um tímabundið ástand að
ræða, en fyrir Sporðdrekann er þessi tími mótandi og setur mark
sitt á sálina. Hann er því heldur dulur og lifir töluvert í eigin
heimi.
Tilfinningar
Sporðdrekinn er tilfinningaríkur, viðkvæmur og frekar varkár. Að
öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en
tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er
heldur fámáll en kjarnyrtur þegar hann talar á annað borð (staða
Merkúrs í merki hefur töluverð áhrif á talanda). Hann vill vera
hreinskilinn og er lítið gefinn fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt
er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur
og tekur tilfinningar og líðan annarra auðveldlega nærri sér. Hann
heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Einnig vill hann kafa
djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir
yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar Sporðdrekinn
er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann
alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að
ræða mál sem öðrum finnst óþægilega persónuleg. Sporðdrekinn getur
því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum eða þeim sem skilja
hann ekki, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.
Stjórnsemi
Sporðdrekinn er eitt af stöðugu merkjunum. Það táknar að hann er
fastur fyrir og ósveigjanlegur í persónulegum stíl sínum og
viðhorfum. "Nei, þetta geri ég aldrei," segir hann og verður ekki
haggað. Þó hann geti virst rólegur á yfirborðinu er hann ráðríkur
og stjórnsamur undir niðri. Hann er í raun launfrekur og þarf að
ráða, að minnsta kosti yfir eigin umhverfi og lífi.
Rósemi eða ákafi
Svo virðist sem framkoma Sporðdrekans skiptist í tvö horn. Annars
vegar er hinn hægi og rólegi Sporðdreki sem heldur sig út af fyrir
sig og er áhorfandi. Hins vegar er maður með kraftmeiri og opnari
framkomu, sem er krefjandi, ráðríkur og stundum eilítið öfgafullur
í ákafa sínum að komast áfram og gera það sem hann ætlar sér.
Alvara
Alvörugefni er einkennandi fyrir Sporðdrekann. Hann er skapstór og
tilfinningaríkur og tekur mjög ákveðna afstöðu með eða á móti
mönnum og málefnum. Hann elskar eða hatar. Hann vill ganga heill að
hverju verki, hvort sem er um vinnu, ást eða áhugamál að ræða. Hann
er lítið fyrir hálfkák og vill komast til botns í hverju máli.
Sporðdrekinn er því ekki maður sem á auðvelt með að skipta sér á
milli margra ætlunarverka.
Einbeiting
Alvörugefni Sporðdrekans og þörf fyrir að komast til botns tengist
öðrum persónuleikaþætti, sem er einbeiting. Hann hefur þann
hæfileika að geta einbeitt sér að ákveðnum málum og útilokað
umhverfi sitt og annað sem er óviðkomandi. Segja má að honum hætti
til að fá einstök mál á heilann, svo jaðri við þráhyggju.
Kaldhæðni
Skopskyn Sporðdrekans birtist oft í beittum og kaldhæðnislegum
athugasemdum. Hann á til að "stinga" með eiturbroddinum fræga þegar
sá gállinn er á honum. Hann er því erfiður andstæðingur og vont að
lenda í rimmu við hann, enda á hann til að vera grimmur ef fólk
reitir hann til reiði eða stendur í vegi fyrir honum. Hann berst
hins vegar af sama krafti fyrir þá sem honum þykir vænt um og er að
öllu jöfnu traustur og góður vinur.
Dulúð
Sporðdrekinn hefur áhuga og hæfileika á sviði rannsókna. Hann
heillast oft af því sem er til dæmis dularfullt og hefur gaman af
að svipta hulunni af yfirborðinu og komast að kjarna málsins. Hann
hefur því oft áhuga á spennumyndum, og glæpasögum, en einnig á
dauðanum, kynlífi og reyndar öllu því sem er á einhvern hátt hulið
myrkri, spennu og dulúð.
Endurnýjun
Sporðdrekinn er merki hreinsunar og endurnýjunar. Hann er næmur á
eigin veikleika sem og veikleika annarra, enda á hann tiltölulega
auðvelt með að sjá í gegnum fólk. Hreinsunarþörf hans getur beinst
að eigin persónuleika eða færst yfir á þjóðfélagið og umhverfið.
Stundum lýsir hún sér þannig að Sporðdrekinn fer yfir atburði
liðins dags og heitir sér því að endurtaka ekki þau mistök sem hann
hefur gert. Hann getur einnig átt í mánaðalangri eða áralangri
innri baráttu. Það er ekki óalgengt að hann brjóti sig niður og
sökkvi djúpt í sjálfseyðingu. Hann sér gallana í fari annarra og
spillinguna í þjóðfélaginu. Því er algengt að Sporðdrekinn tali um
spillingu stjórnmálamanna og hafi áhuga á að stinga á kýlum
mannlegs samfélags. Þessi sama orka, blönduð tilfinninganæmi, gerir
að verkum að hann er að upplagi ágætur sálfræðingur eða læknir.
Hann sér veikleika fólks og með réttri þjálfun getur hann hjálpað
því að losa sig við vankanta sína.
Einvera
Til að endurnýja lífsorku sína og viðhalda henni þarf Sporðdrekinn
að geta dregið sig annað slagið í hlé. Hann þarf á reglulegri
tímabundinni einveru að halda. Ef önnur merki viðkomandi Sporðdreka
eru félagslynd getur það komið honum að sömu notum að skipta annað
slagið um umhverfi. Sporðdrekinn er valdamerki, sem táknar að hann
þarf að ráða sínu eigin lífi og lífsháttum. Því er æskilegt að hann
vinni við stjórnun eða geti sinnt eigin verkefnum án afskiptasemi
frá öðrum.
»
28.03.2007 23:11:29 / salome
Ég og tíminn erum ekkert of sátt þessa dagana. Mig vantar meira
af honum en hann flýgur framhjá og er greinilega að flýta sér
eitthvað annað.... Ég gæti verið að allan sólahringinn en ég held
að það myndi ekki duga til.
Það hefur reyndar líka sett aðeins strik í reikninginn að ég er
búin að vera aðeins slöpp, búin að sofa og sofa. Missti röddina á
föstudaginn og það hefur bara eiginlega ekkert heyrst í mér síðan.
Enda búið að gera frekar mikið grín að mér.......
Fórum í skoðunarferð á laugardaginn, ákvað að
skella mér þrátt fyrir raddleysi og slappleika. Fórum að skoða 3
nýbyggð fjós ásamt fullri rútu af afar hressum og skemmtilegum
sunnlendingum. Ég lærði það að svona ,,skoðunarferðir" eru ekkert
nema bara fyllerísferðir. Og þarna var mér alla ferðina bent á það
að ég ætti bara að drekka nógu sterkt áfengi, þá myndi þetta nú
lagast, raddleysið sem sagt. Og svo var bara hlegið að mér. Svo
gat ég náttúrulega lítið andmælt þessu þar sem það heyrðist varla í
mér.... En já, það var boðið uppá frítt áfengi á öllum stöðum
sem við komum á. Maður var eiginlega farin að sjjá svolítið eftir
því að drekka ekki, þarna hefði maður geta komist á fínt fyllerí.
Nei, annars ekki. En, jújú, margir voru orðnir aðeins
hressari en þeir eiga að sér að vera. Og það var mikið
,,hneikslast" á okkur Alla fyrir að drekka ekki. Siggi meðal annars
klappaði mér á öxlina og sagði að þetta væri allt í lagi, þetta
myndi lagast. Ég hlyti að þroskast upp í þetta á endanum! 
Svo á leiðinni heim var náttúrulega annar hver maður, nei, ég
held bara flestir nema ég og Alli með pela sem gengu svo fram og
til baka eftir rútunni.
Svo í lok ferðar var búið að koma með misgáfulegar hugmyndir um
bæði drykkjuleysið og raddleysið. Þær komu aðalega frá sessunautum
okkar hinum megin við ganginn. Ég var sem sagt svona raddlaus af
því ég drakk svona rosalega mikið daginn áður, þá sem sagt á
föstudeginum. Og Alli drakk ekki í ferðinni af því ég er svo
rosalega mikil gribba að hann bara mátti það ekki! Spáið í það
hvað hann á vonda konu. 
»
17.03.2007 22:50:44 / salome
Og mikið af
honum. Og vitið þið hvað ég gerði???? Fór út og bjó til
snjókall! Sem akti rosalega lukku hjá smáfólkinu mínu.
Enda geggjað flottur snjókall!! En ekki hvað? Mér fannst
bara nokkuð gaman að fá svona mikin snjó. En það var reyndar
af því að það var ekkert rok. Ég fæ ógeð um leið og það kemur
rok og hann fýkur út um allt.
Þessa
dagana finnst mér ég vera að setja stelpurnar mínar alltof
snemma upp í rúm. Það er orðið bjart svo rosalega lengi og
mér finnst klukkan sjö að klukkan sé svona fimm. Svo skil ég
ekkert í því að þær sofni bara um leið.

Já, og,
eitt en. Hvaða 10 til 15 manneskjur eru það sem eru að koma
hérna inn eiginlega á hvernig degi????????? Ég er eiginlega
orðin svolítið forvitin sko....... Það er sko mjög erfitt
fyrir mig af því ég er svo rosalega forvitin
manneskja.
»
16.03.2007 14:47:26 / salome
Anna! Ég var gegt dugleg! Tókstu eftir því? Ha? Ha? 
Þú verður að komast að því hvað það er annars verð ég gegt
móðguð! 
»
15.03.2007 00:33:08 / salome
Ég var rekin til að fara að blogga. Er samt gríðarlega þreytt og
hugmyndasnauð eitthvað núna. Hef ekkert að segja.
Það sem gengur á hjá mér þessa dagana er Volare. Ég hugsa
um volare, ég vinn við volare og mig dreymir orðið volare líka.
Búin að kaupa mér fullt, fullt af vörum auðvitað, maður þarf þess
til að geta verið að kynna og þessar vörur eru bara snilld. Búin að
finna æðisleg dagkrem og næturkrem og frábæran maska líka. Þessar
vörur eru bara frábærar út í eitt. Og eins og þið sjáið þá blogga
ég bara um Volare líka...... Tala ekki um neitt annað, ég bíð bara
eftir að fólk verði þreytt að því að heyra mig tala um þetta
endalaust. Er alveg stórmerkilegt hvað Alli hefur mikla þolinmæði
fyrir því að heyra mig tala um snyrtivörur
endalaust......
En já, það var kynning um síðustu helgi sem gekk bara
stórvel. Var rosa gaman. Svo ætla ég t.d. að troða mér inná
Önnu og kynna hjá henni á næstunni. 
En jæja, búin að blogga smá. Núna ætla ég að fara að reyna
að sofa. Og dreyma dagkrem líklega.......
»
08.03.2007 19:57:59 / salome
PIRR! PIRR! PIRR! PIRR!
Vildi bara deila þessu með ykkur!
»
06.03.2007 22:18:35 / salome
»
28.02.2007 21:17:42 / salome
Ég ætti að vera að vinna eeeeen er að
asnast til að skrifa eitthvað hérna inn í
staðinn.....
Um síðustu helgi þá fórum við kallinn í bæinn. Stúlkurnar
pössuðu uppá ömmur sínar á meðan. Þegar við komum í bæinn var
brunað í Smáralindina þar sem var til dæmis fjárfest í undirfötum í
Debenhams (mæli með því, þau eru æði. ) sparifötum á kallinn og
svo keypti ég auðvitað föt á litlu prinsessuna henar Karen. Og um
leið og ég gerði það afrekaði ég alveg heilmikið! Ég fór inn í
Adams og keypti ekkert handa skvísunum mínum í þetta skiptið.
Dugleg ekki satt???? Svo kom yndislegi maðurinn minn mér á óvart
og keypti handa mér rós, er svo sætur.
Þegar við voru svo búin að versla þá var farið á Amerikan Style,
en ekki hvað? Er hægt að borða annars staðar í Reykjavík eða?
Eftir það kíktum við til Karenar og Trausta, rúntuðum Laugaveginn
sem er algjört möst! og svo fórum við heim til afa Alla til að
klæða okkur í sparifötin.
Svo var farið á Tívolí þar sem verið var að halda uppá afmæli
hjá fullt af fólki. Ég var sem betur fer ennþá södd eftir Style-inn
svo ég fékk mér bara lítið að borða og mikið er ég fegin því. Held
ég segi ekkert meira um það, en félagsskapurinn þarna var frábær
svo það var bara allt í lagi, Gaui og Elías voru auðvitað þarna og
fullt fullt af fólki. Og auðvitað Anna, sem mér finnst by the way
að ætti að fara að blogga!!! Ákvað að skjóta þessu hérna að.......
Ég þurfti sko að berjast við mann og annan til að taka frá sæti
fyrir hana, lagði mikið á mig!! Hefði reyndar viljað eyða
meiri tíma með henni, en það kemur bara næst. 
En svo eftir matinn þurftum ég, Alli, Gaui og Elísa að rjúka því
við fórum í leikhús klukkan 20. Fórum á Laddi 6 tugur og það var
ÆÐI!! Frábært, æðislegt, stórkostlegt. Ég á sko eftir að lifa á
þessu lengi. Maðurinn er bara snilld. Maður hló eiginlega allan
tímann, ef maður hló ekki var maður að klappa á milli atriða. Svo
keyptum við Ladda disk sem var verið að selja þarna og hann er
auðvitað spilaður í gríð og erg í bílnum, við mikla hrifningu hjá
skvísunum. Uppáhalds lagið er Superman!!!!! Með hrópum og köllum og
hendina út í lofti og allt. Svo er alltaf dansa mamma! Syngja
mamma! Syngja pabbi! Dansa pabbi! Svo ef þið sjáið bíl fullan af
fólki sem er að: Greiða sér! klóra sér á bakinu! taka skriðsund!
Veifa höndunum! og svo framvegis........ þá erum það við .......
Þið kannski veifið á móti. 
En, já, áfram með söguna, eftir leikhús var haldið niður í bæ.
Þá var sest inná Celtic Cross og drukkið ......... kók. Og
kaffi, ekki má gleyma því. Tryggvi og kærastan hans kíktu og svo
Fríða. Það var yndislegt að hitta hana. Farðu að koma aftur í
sveitina stelpa! Þarna vorum við svo til u.þ.b. þrjú og þá var
lagt af stað heim. Ég dottaði þó nokkuð oft, var orðin svo þreytt.
( Held að Alli hafi ekki gert það ..... allavega komumst við alla
leið heim. )
Jæja, þá er ég nú búin að segja ykkur þessa skemmtiferðasögu
mína svo núna get ég haldið áfram að vinna, reyna að gera eitthvað
af viti. Já! Ég geri það stundum! 
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|